Tix.is

Um viðburðinn

Wardruna er orðin gríðarþekkt í heiminum og vinnur út frá sögulegri tónlist víkingaaldar. Hópurinn leikur á forn hljóðfæri og sækir yrkisefni í bókmenntaarf á borð við Eddukvæði.  

Wardruna má skýra sem verkefni tileinkað því að búa til tónlist í anda norrænnar menningar og hefða sveipaða dulrænu yfirbragði.

Hljómsveitin notast við mörg af elstu hljóðfærum sem finna má í norrænni menningu ásamt ljóðum og kveðskap sem hljómsveitin sameinar í nútímalegan hljóðheim.  

Hljómsveitin flytur kynngimagnaða tónlist og leikur meðal annars á geithorn og önnur forn hljóðfæri. Upplifun hljómleikagesta er því mögnuð og tilfinningin er m.a. af því að vera staddir við blót og þingsetningu til forna.