Tix.is

Um viðburðinn

Í nóvember í fyrra kom út platan Epicycle með Gyðu Valtýsdóttur. Útgáfutónleikar hennar verða föstudaginn 3. mars nk. í Dómkirkjunni kl. 21:00.

Flytjendur á tónleikum:
Gyða Valtýsdóttir, selló - söngur
Shahzad Ismaily, gítar
Julian Sartorius, trommur
Júlía Mogensen: kristalsglös
Frank Aarnink: kristalsglös, zithar, slagverk o.fl.
Óli Björn Ólafsson: kristalsglös, slagverk
Kristín Anna og Ásthildur Valtýsdætur, söngur
Kórus

Á plötunni Epicycle má m.a. finna elsta skráða tónverk sögunnar, Grafskrift Seikilosar, en einnig nýrri verk eftir þekkt tónskáld á borð við Messiaen, Prokofiev, Crumb og Schumann. Gyða tekur fyrir hin ýmsu verk sem hafa sérstakt gildi fyrir hana og flytur þau eftir sinni eigin persónulegu túlkun.

Platan hefur vakið töluverða athygli og fengið frábæra dóma. Jónas Sen segir t.a.m. frá verkinu Grafskrift Seikilosar í dómi sínum um plötuna sem birtist á visir.is „…sköpuð er tímalaus stemning sem er svo lokkandi að maður hreinlega hverfur inn í aðra veröld.“

Á plötunni fær Gyða til liðs við sig frábæra listamenn á borð við Shahzad Ismaily, Danny Tunick, Hilmar Jensson, Julian Sartorius og Michael York.

„Hér er einhver óræður galdur í gangi sem hefur sig upp fyrir sjálfa tónlistina og hittir mann þráðbeint í hjartastað.“ Arnar Eggert: mbl.is

„Þetta er gripur sem gefur fyrirheit um betri heim.“ Pétur Grétarsson: ruv.is

Gyða Valtýsdóttir: Epicycle, Kraumsverðlaunin 2016

Gyða Valtýsdóttir: Epicycle tilnefning til Íslensku tónlistarverðlaunanna: Plata ársins: Opinn flokkur

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Mengi og Smekkleysu.