Um viðburðinn
RR og Pink Iceland kynna:
RuPaul's Drag Race - Battle Of The Seasons!
Sýndar hafa verið 6 seríur af þessum skemmtilegu þáttum, RuPaul's Drag Race og er sú 7. væntanleg til sýningar núna í mars.
Þátttakendur úr fyrri þáttum mæta á klakann og halda eitt heljarinnar skemmtikvöld fyrir landann í Gamla Bíó, þann 17. apríl næstkomandi.
Fram koma Adore Delano, Alaska 5000, Ivy Winters, Jinkx Monsoon, Pandora Boxx og Sharon Needles
Athugið að breyting getur orðið á því hverjir komi fram á kvöldinu.
Kynnir kvöldsins er hin frábæra Michelle Visage
Tvenns konar miðar verða í boði:
Almennt verð 6.500 kr
VIP miði 8.900 kr
Tvenns konar miðar eru í boði, VIP sem innifelur stund með drottingunum fyrir sýningu, þar sem fólk gefst tækifæri á að fá myndir og slíkt með þeim. Takmarkað magn í boði.
VIP hittingur byrjar kl 21.00
Húsið opnar kl 22.00
Sýningin hefst svo kl 23.00