Tix.is

Um viðburðinn

ÁFRAM ER HÆGT AÐ KAUPA MIÐA Á STREYMIÐ TIL 28. MARS

Sýningin Laddi 75 fer núna einnig fram í streymi í gegnum NovaTV og myndlykla Símans og Vodafone. Seinni sýningin 19. mars sem fer fram í Háskólabíói kl. 20 verður streymd þannig allir landsmenn geta fagnað 75 ára afmæli Ladda. Útsending hefst með upphitun kl. 19:30.

Miðasalan er þegar hafin inn í myndlyklum Símans og Vodafone og svo geta allir keypt aðgang að vefstreymi í gegnum NovaTV á Tix; ekki er nauðsynlegt að vera með áskrift að NovaTV þar sem hún fylgir frítt með fram yfir streymið eftir að miði er keyptur.

UM SÝNINGUNA

Merkismaðurinn Laddi telur árin 75 og því ber að fagna. Af því tilefni stígur hann á svið í Háskólabíói, með góðum gestum og hljómsveit til að rifja upp ferilinn og fagna tímamótunum. Sýningin verður blanda af tónlist, gríni og skemmtilegum uppákomum.

GESTIR

Ari Eldjárn
Eyþór Ingi
GDRN
Margrét Eir

Sérstakur gestur er Þórhallur Þórhallsson, sonur Ladda og einn fyndnasti maður Íslands. Heiðursgestur er Hjörtur Howser, samferðamaður Ladda í tónlistinni síðustu 40 árin.

Svo er næsta víst að ofsalega sérstakir gestir láti einnig sjá sig, hvort sem þeim er boðið eða ekki, en þar erum við að tala um karaktera á borð við Elsu Lund, Martein Mosdal, Eirík Fjalar, Saxa og Magnús Bónda.

Fyrir hlé verður áhersla lögð á grín og glens ein í seinni hlutanum verður farið um víðan völl í tónlistarferli Ladda.

Ljóst er að það stefnir í skemmtilegustu kvöldstundir ársins. Það verður hlegið, tónlistin mun óma og við fögnum öll 75 ára afmælinu saman með þjóðargerseminni Ladda.


UM LADDA
Laddi er sannkallaður umskiptingur; skemmtikraftur sem klæðir sig í nýtt hlutverk ár eftir ár. Á ferlinum hefur hann sungið, leikið, samið og skrifað og alltaf hefur hann náð að láta okkur hlæja, gráta og undrast yfir því hvernig einn einstaklingur getur búið yfir svona miklum hæfileikum.

Öll höfum við séð hann á árum áður í Heilsubælinu, Imbakassanum og Spaugstofunni, í Áramótaskaupinu, bak við trommusettið og svo míkrafóninn á sviði með bróður sínum Halla. Nýlega setti hann upp eina vinsælustu grínsýningu Íslandssögunar: Laddi 6-tugur, sem gekk fyrir troðfullu húsi í tvö ár samfleytt og sjónvarpsþáttaröðin Jarðarförin sló öll met í Sjónvarpi Símans í fyrra. Kvikmyndaferillinn er einnig langur og skrautlegur, og þar má nefna snilldarmyndir á borð við Stella í Orlofi og Amma Hófý. Einnig hefur Laddi stigið á næstum öll leiksvið landsins, allt frá því að hann kom fram í Litlu hryllingsbúðinni í Gamla Bíói 1985, að Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu, og allt þar á milli.

JÓN ÓLAFSSON - TÓNLISTARSTJÓRN, HLJÓMBORÐ, RADDIR
ANDRI ÓLAFSSON - BASSI OG RADDIR
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON - GÍTAR, MANDÓLÍN O.FL:
HARALDUR V. SVEINBJÖRNSSON - HLJÓMBORÐ, GÍTAR OG RADDIR
KJARTAN HÁKONARSON -TROMPET, SLAGVERK OG RADDIR
SAMÚEL JÓN SAMÚELSSON - BÁSÚNA OG SLAGVERK
VILHJÁLMUR GUÐJÓNSSON - GÍTAR, SAXÓFÓNN O.FL:

GRÉTA BOÐA – GERVI, HÁR OG FÖRÐUN
LADDI - HANDRIT
GUNNAR HELGASON - LEIKSTJÓRN

Umsjón: Sena Live