Tix.is

Um viðburðinn

Þann 11. desember mun hljómsveitin Dikta halda sína árlegu jólatónleika í Bæjarbíói Hafnarfirði.
Það þarf vart að kynna Diktu fyrir Íslendingum enda fyrir margt löngu búnir að syngja sig og spila inn í hjörtu þjóðarinnar með hverjum smellinum á fætur öðrum sem fengið hafa að hljóma á öldum ljósvakans.
Síðustu ár hefur hljómsveitin jafnan haldið tónleika á þessum árstíma og spilað jólalög í bland við sín eigin lög í sparibúningi. Engin breyting verður á því í ár og verður hugljúfur jólaandinn í algeru fyrirrúmi.

Engin hætta er á öðru en að hver sá sem mætir á þennan viðburð fari þaðan með bros á vör. Ekki láta þig vanta í Bæjarbíó þann 11. desember.