Tix.is

Um viðburðinn

COVID VÆN SKEMMTUN
Þú þarft ekki að fara í hraðpróf til að njóta Ævintýris í Jólaskógi þar sem aðeins 25 manns eru á hverri sýningu.
Loftræsting er með ágætum enda fer sýningin fram utandyra. Auðvelt er að halda fjarlægð við næsta mann enda nóg pláss í skóginum.
Frestum ekki jólunum, njótum þeirra á öruggan hátt.

Ævintýri í Jólaskógi verður flutt í Guðmundarlundi á aðventunni, annað árið í röð.

Við stefnum á að setja upp sýninguna, aftur og aftur, um ókomin ár en gera um leið einhverjar breytingar á hverju ári. Þannig förum við aðra leið í gegnum skóginn en í fyrra, heyrum nýjar sögur af uppáhalds tröllafjölskyldunni okkar og kynnumst jafnvel einhverjum nýjum persónum sem við höfum ekki hitt áður.

Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng sýning þar sem áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi, vopnaðir vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr jólafjölskyldu okkar Íslendinga, þau Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og tröllasystkini þeirra.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að skyggja. Þannig byrjar fyrsta sýning hvers dags klukkan 17.00 og leggur þá fyrsti hópurinn af stað í vasaljósagöngu inn í skóginn. Ferðalagið hefur verið varðað með jólakúlum, luktum og öðru jólaskrauti svo áhorfendur eigi það ekki á hættu að villast í skóginum.

Eftir stutta göngu koma áhorfendur svo að fyrsta „sviðinu" en þar er vel tekið á móti hópnum og flutt lítil jólasaga um ævintýri tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrri tíma. Verkið er tæpar tíu mínútur í flutningi og þegar því lýkur heldur hópurinn áfram ferð sinni um skóginn. Litlu innar rekast áhorfendur á fleiri tröll en alls er um að ræða fjögur „svið“, fjórar litlar sögur, sem hver um sig er flutt af einhverjum íbúa Grýluhellis. Gönguferðin tekur þannig tæpan klukkutíma og að henni lokinni er öllum boðið í myndatöku með jólasveini auk þess sem boðið er upp á heitt kakó og piparkökur.

Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, koma vel skóaðir og með vasaljós en öll þessi atriði eru nauðsynleg til að hægt sé að njóta sýningarinnar til hins ítrasta.

Ævintýri í Jólaskógi var frumflutt fyrir jólin 2020 og er þetta því annað árið sem www.jolasveinar.is bjóða upp á þessa skemmtilegu sýningu. Verkið er eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og er það hún, ásamt Andreu Ösp Karlsdóttur, Hlyni Þorsteinssyni, Sigsteini Sigurbergssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Þórunni Lárusdóttur sem ber ábyrgð á því að jólasveinafjölskyldan skili sem bestu verki. Flest þekkjum við þau fyrir störf sín með Leikhópnum Lottu og eru þau vön að setja upp sýningar utandyra þó vissulega sé óvenjulegt að þau velji náttúruna sem sýningarstað svona að vetri til.

Við mælum með sýningunni fyrir fjögurra ára og eldri en að sjálfsögðu eru allir velkomnir til okkar. Leiðin er þó ekki fær kerrum svo yngstu börnunum þarf að halda á ef þið þurfið að hafa þau með í för. Athugið að allir verða að vera með miða óháð aldri. Þá biðjum við ykkur um að skilja hunda eftir heima og er það bæði svo þeir trufli ekki sýninguna og aðra gesti.

Miðaverð er 2.900 krónur á mann og þurfa allir að vera með miða óháð aldri.

Í Jólaskóginum er auðvelt að passa upp á persónulegar sóttvarnir enda er sýningin utandyra og lítill hópur á hverri sýningu. Hugmyndin að sýningunni varð enda til í miðjum heimsfaraldri fyrir jólin 2020. Gestir geta því óhræddir slegist í för með okkur í vetur.