Tix.is

Um viðburðinn

PÉTUR JÓHANN ÓHÆFUR.

Brandarabúntið Pétur Jóhann ætlar að koma sterkur inn á árinu 2021 með sprenghlægilega sýningu og glænýtt efni.

Sýningin PÉTUR JÓHANN ÓHÆFUR er 2 klst. uppistandssýning samin af Pétri sjálfum og er sjálfstætt framhald sýningarinnar PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR sem fór sigurför um landið fyrir nokkrum árum.

Það er ekki á hverjum degi sem að þessi fáránlega fyndni og prýðisgóði piltur er með uppistand opið öllum. Það er því um að gera að nýta þetta einstaka tækifæri til að sjá Pétur Jóhann live.

Pétur er, eins og alþjóð veit, gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari. Þar að auki hefur hann unnið marga stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.

Ath. Sýningin verður í Hljómahöll

ARG Viðburðir