Á HÁTÍÐLEGUM NÓTUM 3. og 4. desember
Jólatónleikar Siggu Beinteins
Jólatónleikar Siggu Beinteins hafa verið haldnir í Eldborgarsal Hörpu undanfarin 11 ár fyrir fullu húsi og í ár mun Sigga ekki gefa neitt eftir og mætir ásamt gestum og stórhljómsveit aftur á svið Eldborgar föstudaginn 3. desember og laugardaginn 4. desember.
Sérstakir gestir Siggu í ár verða þau Ellen Kristjánsdóttir, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Gissur Páll Gissurarson og Bjarni Arason ásamt karlakórnum Fóstbræðrum.
Eins og venjulega mun Sigga gera sitt allra besta til að koma öllum í hinn eina sanna jólagír.
Hljóðfæraleikarar
Benedikt Brynleifsson, trommur
Friðrik Karlsson, gítar
Haraldur Sveinbjörnsson, píanó, hljómborð
Róbert Þórhallsson, bassi
Stefán Örn Gunnlaugsson, píanó, hljómborð
Matthías Stefánsson, fiðla, gítar
Bakraddir
Heiða Ólafsdóttir, Íris Hólm og Gísli Magna Sigríðarson
Karlakór
Karlakórinn Fóstbræður