Tix.is

Um viðburðinn

Hver kannast ekki við Emil í Kattholti, uppátækjasama og hjartahlýja drenginn sem er hugarsmíð barnabókahöfundarins ástsæla Astrid Lindgren? Síðan Emil kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1963, hefur hann átt vísan stað í hjörtum barna jafnt sem fullorðinna um heim allan og er nafn hans samofið hugmyndum um lífsgleði og prakkaraskap. Hér kynnumst við ekki bara Emil og Ídu, litlu systur hans, heldur einnig misþolinmóðum foreldrum þeirra Ölmu og Anton, hinni seinheppnu Línu vinnukonu, sögukonunni Týtuberja Mæju, vafasömu Ráðskunni á fátækrahælinu og síðast en ekki síst stórvini Emils, Alfreð vinnumanni.

Hér mun ekki skorta fjörið þegar leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir leiðir glæsilegan hóp leikara og tónlistarmanna inn í Smálöndin sænsku. Kattholt er heill heimur ævintýra og nú lifnar hann sem aldrei fyrr í söngvum og gleði á stóra sviði Borgarleikhússins.

Sýningin eru tvær klukkustundir og 30 minútur með hléi. 

Leikarar:
Árni Þór Lárusson
Ásthildur Úa Sigurðardóttir
Esther Talía Casey
Haraldur Ari Stefánsson
Hjörtur Jóhann Jónsson
Jóhann Sigurðarson
Rakel Ýr Stefánsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
Sigurður Þór Óskarsson
Sólveig Arnarsdóttir
Sólveig Guðmundsdóttir
Þorsteinn Bachmann
Gunnar Erik Snorrason
Hlynur Atli Harðarson
Sóley Rún Arnarsdóttir
Þórunn Obba Gunnarsdóttir 

Höfundur: Astrid Lindgren
Höfundur leikgerðar: Johan Gille
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
Leikstjórn: Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Tónlist: Georg Riedel
Danshöfundur: Lee Proud
Tónlistarstjórn: Agnar Már Magnússon
Leikmynd: Eva Signý Berger
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóð: Garðar Borgþórsson
Myndbönd: Elmar Þórarinsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir
Hljóðfæraleikarar: Agnar Már Magnússon, Andrés Þór Gunnlaugsson, Haukur Gröndal, Kjartan Guðnason og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir