Tix.is

Um viðburðinn

Gaflaraleikhúsið er einstaklega stolt af því að kynna BÍDDU BARA – hlátursprengju fyrir glaðsinna grindarbotna - eftir stórstjörnurnar Björk Jakobsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Selmu Björnsdóttur sem leiða nú saman hryssur sínar í fyrsta sinn. Þetta  einlæga, beitta og drepfyndna verk fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir. Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið alfarið á sinni eigin reynslu, draga ekkert undan en ljúga helling. Þetta er verk um íslenskar konur, samið af íslenskum konum og fyrir íslenskar konur (og fyrrverandi, núverandi og tilvonandi eiginmenn sem þora að koma). Það má segja að þetta sé olnboga-verk, því áhorfendur munu skjóta olnboga í sessunautana ótt og títt og hvísla: svona ert þú! Uppistand, samtöl og söngur af bestu sort. 

Þær Salka Sól, Selma og Björk leika öll aðalhlutverk, aukahlutverk, kvíðaverk og smáhlutverk í sýningunni auk þess að flytja snilldarlega helling af frábærri, nýrri tónlist eftir þær sjálfar og Karl Olgeirsson. 

Leikstjórn er í höndum fyndnasta  leikstjóra landsins Ágústu Skúladóttur. Þórunn María Jónsdóttir sér um búninga og leikmynd og Freyr Vilhjálmsson sér um ljósahönnun. 

Frumsýning verður þann 9. apríl í Gaflaraleikhúsinu.