Tix.is

Um viðburðinn

ATH: ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR!

Daniel er skosk súperstjarna í uppistandsheiminum sem margir þekkja frá ótrúlega vinsælum þáttum hans á Netflix (Dark og Jigsaw) og HBO (X).

Síðasti túr Daníels seldist upp í 40 löndum, þar á meðal Íslandi og hann kom fram 300 sinnum í Evrpópu, Ameríku, Kanada, Ástralíu, Japan, Hong Kong og Rússlandi þar sem sýningin hlaut titilinn “stærsta uppistandssýning á ensku í Rússlandi frá uppphafi”. Hann er einnig tíður gestur í þætti Conans O’Brien og hefur slegið miðasölumet á stærstu uppstandshátíð heims, Edinburgh Festival Fringe.

Þættirnir hans á Netflix eru aðgengilegir í 190 löndum, á 26 tungumálum og sýningin hans Jigsaw er fræg fyrir að hafa átt hlut í 100,000 sambandsslitum og 200 skilnuðum á heimsvísu.

HUBRIS er glæný sýning sem fékk að líta dagsins ljós í New York og Los Angeles rétt áður en heimurinn lokaði fyrir ferðalalög, en hann hefur einnig komið fram síðan þá á bílasýningum og í uppseldum sölum þar sem möguleiki var að halda sýningar með hæfilegri fjarlægð.

Nú getum við loksins hlakkað til að halda sýningu á nokkurn veginn eðlilegan hátt og getum ekki hugsað okkur betri leið til þess en með einum fyndnasta manni heims.

Sérstakur gestur: Kai Humphries*

“Rjúkandi... yndislega svart grín. Stórkostlegt!” ***** - Mail On Sunday

“Einfaldlega heimsklassi” ***** - Herald Sun

“Sjúklega fyndinn...Ekki missa af honum!” ***** - The Age

Athugið:
Ekki er mælt með að börn yngri en 16 ára horfi á þessa sýningu vegna þess að hún inniheldur efni sem er ekki ætlað börnum.
Miðahafar samþykkja að sýningin gæti verið tekin upp, ljósmynduð og/eða streymd.        
* Sérstakur gestur gæti breyst síðar.

Umsjón: Sena Live