Glæný og bráðfyndin sketsasýning
Kanarí er hópur grínista, leikara, sviðs- og handritshöfunda sem hefur gert garðinn frægan með samnefndum sketsaþáttum á RÚV. Sýningin er sketsasýning og því er framvindan ekki heilsteypt heldur eru sagðar stuttar sögur af fjölbreyttu fólki í allskyns aðstæðum.
Á meðal persóna sem bregður fyrir í sýningunni eru áhrifavaldar sem þurfa að hljóma gáfulega, vandræðalegir swingerar, vísindamaður sem smíðar hina fullkomnu konu og meira að segja námsráðgjafi í Hogwarts. Ekkert samhengi, enginn boðskapur, bara 70 mínútna langt hláturskast! Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu – Leiklistarráði.
Leikarar: Eygló Hilmarsdóttir, Máni Arnarson, Pálmi Freyr Hauksson og Steiney Skúladóttir.
Leikstjórn
Guðmundur Felixson
Aðstoðarleikstjóri
Inga Steinunn Henningsdóttir,
Leikmynd og búningar
Kristinn Arnar Sigurðsson
Aðstoð við sviðshreyfingar
Þórey Birgisdóttir
Aðstoð við lýsingu:
Jóhann Friðrik Ágústsson
Grafísk hönnun
Pétur Geir Magnússon
Ljósmyndir
Saga Sigurðardóttir
Verkefnið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu – Leiklistarráði.