Peningamálafundur Viðskiptaráðs

Grand Hótel

6. febrúar

Miðaverð frá

5.900 kr.

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fer fram á Grand Hótel þann 6. febrúar næstkomandi. Í ár er yfirskrift fundarins „Liggja vegir til lágra vaxta?“

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, flytur meginerindi fundarins. Þá mun Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flytja opnunarávarp. Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður með þátttakendum á fjármálamarkaði.

Fundurinn er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar, útgáfu Peningamála og nýrrar þjóðhagsspár degi áður.

Þátttakendur í pallborði verða eftirfarandi:

  • Birna Einarsdóttir, stjórnarformaður Iceland Seafood International

  • Lárus Welding, rekstrarstjóri Stoða

  • Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans

  • Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu

Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8:00.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger