© 2024 Tix Miðasala
Salurinn
•
21. desember
Davíð Þór Jónsson býður til einstakra tónleika á vetrarsólstöðum í Salnum. Sérstakur gestur er listamaðurinn Ragnar Kjartansson.
Davíð Þór Jónsson (f. 1978) skipar einstakan sess í íslensku tónlistarlífi og þótt víðar væri leitað.
Tónlistariðkun hans smýgur undan skilgreiningum; hann er tónskáld, píanóleikari, gríðarlega fjölhæfur
hljóðfæraleikari, spuna- og gjörningalistamaður, útsetjari og hljómsveitarstjóri sem á að baki ótrúlega
fjölbreytt samstarf við stóran hóp fólks úr öllum geirum og þvert á listgreinar. Hann hefur samið tónlist
fyrir kvikmyndir, leikhús, dans- og myndlistarsýningar og tónleikasalinn í allri sinn víðfeðmu mynd en í
litskrúðugum hópi samstarfsfólks má finna Skúla Sverrisson, Ólöfu Arnalds, Diddú, Víking Heiðar
Ólafsson, Ragnar Kjartansson, Benedikt Erlingsson, Commonnonsense og ADHD. Úr þessum síkvika og
magnaða suðupotti sækir Davíð Þór áhrif og innblástur og veitir inn í tónlistarsköpun sem á engan sinn
líka.
DÞJ hefur lifað og hrærst í tónlist frá blautu barnsbeini. Hann nam við Tónlistarskólann á Akranesi og
síðar við Tónlistarskóla FÍH þaðan sem hann útskrifaðist vorið 2001 með láði. Hann hefur um
áratugaskeið verið einn mikilvirkasti liðsmaður íslensks tónlistarlífs og komið fram á óteljandi tónleikum
og hátíðum, hérlendis og víða um heim. Hann hefur sinnt kennslu og vinnusmiðjum við MÍT, LHÍ og
tónlistarskóla víða.
DÞJ hefur unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna, Grímuverðlaunanna og Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna svo eitthvað sé nefnt.