Mozart við kertaljós í fjórum kirkjum

Dómkirkjan í Reykjavík

22. desember

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.

Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og tvö ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, Sigurður Haldórsson sellóleikari og gestur er Sigríður Hjördís Indriðadóttir flautuleikari. 

Á dagskránni eru tvö glæsileg kammerverk eftir Mozart en það eru Kvintett fyrir klarinettu og strengi í A Dúr kv 581 og Kvartett fyrir flautu og strengi í D Dúr kv 285.

Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.

Tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju fimmtudagskvöldið 19. des, í Kópavogskirkju föstudagskvöldið 20. des, í Garðakirkju laugardagskvöldið 21. des og í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudagskvöldið 22. des. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00 og er einungis lýst með kertaljósum. Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 3000 fyrir nemendur, öryrkja og eldri borgara og frítt inn fyrir börn. Miðasala við innganginn og á Tix.is.

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger