Sígild jól

Seltjarnarneskirkja

5. desember

Tónleikarnir Sígild jól eru dásamleg upplifun í upphafi aðventunnar þar sem ríkir hátíðleg og vinaleg stemning. Þetta er í fimmta sinn sem tónleikarnir fara fram og því er það orðin hefð margra tónleikagesta að sækja tónleikana í aðventunni.

Tónleikarnir fara fram í Seltjarnarneskirkju. Á tónleikunum kemur fra einvalalið tónlistarmanna. Söngvararnir eru á meðla okkar fremstu sígildu söngvurum en það eru þau Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran, Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Kristján Jóhannsson tenór.


Á dagskránni er góð blanda af fallegum jólasöngvum og -sálmum ásamt nokkrum vel völdum sígildum söngvum sem eru allt frá barokk-tímabilinu fram til dagsins í dag. Má þar nefna perlur eins og Ave Maríur, Con te partiro, Pie Jesu, Walking in the air, Wexford carol, Ó helga nótt og Heims um ból.

Jón Bjarnason leikur á orgel og Ólöf Siugrsveinsdóttir leikur á selló.

Listamenn:

Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, langspil.
Kristján Jóhannsson, tenór.
Herdís Anna Jónasdóttir, sópran.
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzo sópran.
Jón Bjarnason, orgelleikari.
Ólöf Sigursveinsdóttir, sellóleikari.

Listrænn stjórnandi:
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.



Tilvitnun í ánægða tónleikagesti fyrri ára:

„Yndislegir tónleikar, frábær söngur, gleði og vinátta.“

„Hátíðlegt og nærandi fyrir sálina.“


Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Seltjarnarneskirkju, sem opnar kl. 19:30 og það er frjálst sætaval.

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger