Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar

Borgarleikhúsið

9 sýningar

Miðaverð frá

7.800 kr.

Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar

Þorleifur Aron, kallaður Doddi, fráskilinn karlmaður á fimmtugsaldri og Óli Gunnar, yngri bróðir hans hittast til að horfa á alla leiki Manchester United saman í sófanum. Leikir enska liðsins eru fastinn sem gefur lífi þeirra lit en einnig sá tími sem þeir geta eytt saman og fengið frið frá amstri dagsins. Yfir leiknum fá tilfinningar þeirra lausan tauminn og í gegnum leikinn fá þeir útrás auk þess sem óhófleg drykkja þeirra er réttlætanleg. Þennan tiltekna laugardag sem verkið gerist bregður út af vananum er Benedikt Hafberg, hinn nýi kærasti barnsmóður Dodda ásamt söngvaranum Valdimar bætast óvænt við hópinn að horfa á leikinn. Spennan innan sem utan vallar eykst sem því nemur og úr verður óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur. Því líkt utan vallar sem innan þá getur allt gerst í heimi knattspyrnunnar. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er sýning fyrir alla sem elska og hata fótbolta.

Höfundar: Sveinn Ólafur Gunnarsson og Ólafur Ásgeirsson

Hugmynd: Albert Halldórsson, Ólafur Ásgeirsson, Viktoría Blöndal

Leikstjóri: Viktoría Blöndal

Leikmynd og búningar: Sólbjört Vera Ómarsdóttir

Tónlist: Valdimar Guðmundsson

Lýsing: Ásta Jónína Arnardóttir og Juliette Louste

Sviðshreyfingar: Erna Guðrún Fritzdóttir

Leikarar: Albert Halldórsson, Ólafur Ásgeirsson, Starkaður Pétursson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Valdimar Guðmundsson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger