© 2024 Tix Miðasala
Spritz Venue
•
7. nóvember
Kokteilaskólinn er eina kokteilanámskeiðið á Íslandi þar sem hver þátttakandi gerir sína eigin kokteila undir leiðsögn kokteilameistara. Við gerum saman þrjá spennandi kokteila, skálum í þjóðardrykk Íslendinga, smökkum allskonar áfengi og fræðumst á skemmtilegan hátt um kokteila.
Hægt er að velja um fjögur mismunandi námskeið:
Kokteilaskólinn 1: Sívinsæla kokteilanámskeiðið okkar! Hér rekjum við lauslega sögu kokteila, förum yfir nauðsynleg atriði í hinn fullkomna kokteil og lærum að búa til auðveldar kokteilauppskriftir sjálf!
Við gerum saman drykkina Old Cuban, Basil Gimlet og Clover Club.
Kokteilaskólinn - Heimabarþjónninn: Á þessu námskeiði lærum við hvernig á að gera kokteila fyrir næstu veislu sem allir ættu að kunna eins og Whiskey Sour, Espresso Martini og Gin Fizz. Við förum yfir hvernig á að líta vel út og skipuleggja sig fyrir kokteilakvöld með vinum og lærum hvernig á að koma í veg fyrir þynnku
Tema Italiano: Komdu með okkur í andlegt ferðalag til ítalíu og fáðu þér kokteil sem þú gerðir sjálf/ur á Spritz Venue!
Við kynnum með stolti nýtt þema! Ítalskt þema! Við höfum þróað þrjá nýja kokteila sem munu bræða ísköld hjörtu okkar eftir langan vetur.
Á námskeiðinu verður farið yfir það hvað einkennir ítölsk brögð og ást þeirra á gæða hráefnunum sem skipta öllu máli þegar kemur að drykkja og matargerð.
Drykkir:
Limoncello Sour
Aperol Fizz
Ólífa
Við hlökkum til að taka á móti ykkur með hækkandi sól, eins og Systur sögðu hér um árin.
Námskeiðið er haldið alla fimmtudaga í gullfallega veislusalnum Spritz Venue á Rauðarárstíg 27.
Það eru ristaðar barhnetur í boði fyrir gesti.
Við mælum með að fylgjast með gangi mála á Facebook og Instagram síðu Kokteilaskólanns.
Hlakka rosalega til að taka á móti ykkur!
Ivan Svanur Corvasce
Það þurfa að lágmarki 6 manns að vera skráðir svo að námskeið verði haldið. Námskeiðið er tveir tímar, frá 18:00-21:00.
ATH. Frá og með 10. október verður námskeiðið frá 19:00-21:00.