Tix.is

Event info

EITT ÁSTSÆLASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA

Trésmiðurinn Jafet kemst yfir talandi viðardrumb og fær þá hugmynd að smíða úr honum brúðu. Til verður spýtustrákurinn Gosi; forvitinn prakkari sem á erfitt með að feta hinn rétta veg. Í stað þess að hlýða föður sínum heldur hann á vit vafasamra ævintýra, kynnist talandi kribbu sem reynir að koma fyrir hann vitinu, lætur undirförulan kött og ref snúa á sig og þarf að ganga í gegnum alls konar hremmingar áður en hann kemst til þroska með dyggri hjálp bláhærðu dísarinnar.

Leikarar og tónlistarmenn sýna okkur þetta sígilda og ástsæla ævintýri um spýtustrákinn í nýjum og litríkum búningi. Leikstjóri sýningarinnar, Ágústa Skúladóttir, hefur leikstýrt fjölda barna - og fjölskyldusýninga sem ávallt hafa notið mikilla vinsælda. Leikarar og tónlistarmenn munu sýna okkur sögurnar af Gosa í nýjum búningi leikhóps og leikstjóra sýningarinnar, Ágústu Skúladóttur, sem hefur leikstýrt fjölda barna - og fjölskyldusýningum sem ávallt hafa notið mikilla vinsælda.

 

Höfundur Carlo Collodi/Ágústa Skúladóttir

Söngtextar Karl Ágúst Úlfsson

Leikstjórn Ágústa Skúladóttir

Leikmynd Þórunn María Jónsdóttir

Búningar Þórunn María Jónsdóttir

Lýsing  Þórður Orri Pétursson

Tónlist Eiríkur Stephensen og Eyvindur Karlsson

Leikgervi Guðbjörg Ívarsdóttir

Hljóð Þorbjörn Steingrímsson

Myndband Elmar Þórarinsson

Leikarar Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Halldór Gylfason, Haraldur Ari Stefánsson

Frumsýning 15. febrúar.