Tix.is

Event info

Framvísa þarf neikvæðu hraðprófi. 

Hátíðar - og aðventu ÞRIÐJUDAGSKVÖLD með TVÍHÖFÐA!

 

Í Bæjarbíói, þriðjudagskvöldið 14 desember kl. 20 &

aukasýning þann 21. desember!

 

Þeir félagar Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson hafa ákveðið að bjóða upp á hið rómaða hátíðar – og aðventu þriðjudagskvöld með Tvíhöfða í Bæjarbíói. Það hefur verið mál manna og kvenna að ekki sé hægt að halda almennileg jól fyrr en sest hefur verið niður með þeim Jóni Gnarr og Sigurjóni Kjartanssyni þar sem rædd eru málefni líðandi stundar umbúðalaust, tónlist leikin og sungin, skrítlur sagðar, leikþættir leiknir og ræður fluttar. Og svo má ekki gleyma leynigestum!

 

Á þessari hátíðlegu aðventuhátíð munu þeir Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson bjóða upp á sérstaka hátíðardagskrá sem lætur enga önd ósnortna! Gleðileg jól!