Skip to content

Tix.is

Tjarnarbíó

  • 17. jan. - kl. 17:30
  • 24. jan. - kl. 17:30

Miðaverð:3.900 kr.

Um viðburðinn

Hildur og Kristín eru mættar aftur í sviðsljósið og í þetta skiptið aldrei betri. Þær eru báðar orðnar vel miðaldra og munu gera því hlutskipti góð skil í þessu bráðskemmtilega uppistandi. Efnistök sýningarinnar verða m.a. heimabær þeirra Vesturbærinn, stefnumótamenning fimmtugra og sigrar og ósigrar í lífsins ólgu sjó.

Hildur Birna og Kristín María hafa komið fram með uppistand við fjölda tilefna bæði saman og í sundur síðasta áratuginn. Þær voru í uppistandshópnum Bara góðar sem hélt fjölmargar sýningar í þjóðleikhúskjallaranum, á Akureyri og víða um land á árunum 2018 til 2020.