Skip to content

Tix.is

Tjarnarbíó

  • 28. des. - kl. 18:00

Miðaverð:4.900 kr.

Um viðburðinn

Teenage Choir of Love and Sex er kór sem samanstendur af ungu fólki. Þessi kór hefur skapað söngvasafn undir heitinu The Teenage Songbook of Love and Sex. Kórinn var stofnaður 2019 og verkið var frumsýnt þá. Síðan þá hefur kórinn ferðast um alla Evrópu og komið fram - nú ætla þau að koma fram einu sinni enn á Íslandi áður en þau halda ferð sinni áfram.

Kórinn syngur lög sem hann hefur samið sjálfur og lögin fjalla öll um þeirra eigin reynslu af rómantískum samböndum og kynlífi. Meðlimir kórsins syngja fyrir sig en líka fyrir hvert annað. Kórinn ferðast um heiminn með söngvana og á hverjum stað sem þau heimsækja kynnast þau öðru ungu fólki og þau syngja saman. Þau syngja um ástina, forvitni, um það að missa mey/sveindóminn og um ástarsorgina. Þau syngja fyrir allar druslur, fyrir þau sem koma útúr skápnum en líka um kynferðislega misnotkun, ótta og bælingu og fleira og fleira.

Skilaboðin eru skýr: hvort sem þú ert að upplifa einhverjar nýjar víddir í þínu eigin kynlífi, ert að verða ástfangin/n, líður vandræðalega með eitthvað eða ert fórnarlamb kynferðisofbeldis o.s.frv. - þá ertu ekki ein/n/tt!

Credits

Hugmynd og listrænir stjórnendur: Ásrún Magnúsdóttir and Alexander Roberts
Meðhöfundur tónlistar: Teitur Magnússon
Meðhöfundar og flytjendur: Lísbet Sveinsdóttir, Marta Ákadóttir, Salóme Júlíusdóttir, Ísafold Kristín, Katla Sigurðardóttir Snædal, Kolfinna Ingólfsdóttir, Óliver Ali, Uloma Osuala, Chisom Osuala, Una Barkadóttir, Karen Nordquist Ragnarsdóttir, Egill Andrason, Haukur Guðnason, Hanna Gréta Jónsdóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Karólína Einarsdóttir, Fannar Ingi Árnason, Anna Bíbí Wium Axelsdóttir, Monika Lárusdóttir, Þór Ari Grétarsson.
Kórstjórar: Sigríður Soffía Hafliðadóttir and Aron Steinn Ásbjarnarson

Framleitt og styrkt af: BiT Teatergarasjen, Unglingnum í Reykjavík og apap - Performing Europe 2020, co-funded by the Create Europe Programme of the European Union.