Skip to content

Tix.is

Tjarnarbíó

Um viðburðinn

„Ég lifi enn - sönn saga” er sjónræn sýning um þetta undarlega ferðalag sem lífið er og það eina sem við vitum er að við munum öll deyja.

Verkið er innblásið af persónulegri reynslu aðstandenda við að fylgja sínum nánustu inn í síðasta æviskeiðið og þeirra sem eru staddir í því sjálfir. Það er byggt á sögum, vinnusmiðjum og rannsóknarvinnu með eldri borgurum, með stuðningi Reykjavíkurborgar.

Sýningin vekur hugleiðingar um aðstæður í samfélagi okkar. Átökin á milli löngunarinnar til að lifa sem lengst og óttans við að deyja ásamt þeim hindrunum sem mæta okkur í þeirri glímu.

Við viljum eldast af virðingu og reisn en hver er forgangsröðin? Reynslan sýnir að þegar við eldumst er hver sjálfum sér næstur. Er þetta það samfélag sem við viljum? Höfum við húmor fyrir því?

Sýningin er 75 mínútur, ekkert hlé.

LISTRÆN STJÓRNUN: Rebekka A. Ingimundardóttir
LEIKSTJÓRN: Rebekka A. Ingimundardóttir og Ásdís Skúladóttir
HÖFUNDAR: Rebekka A. Ingimundardóttir, Þórey Sigþórsdóttir, Ásdís Skúladóttir og leikhópurinn
DRAMATÚRG: Hlín Agnarsdóttir
BÚNINGAHÖNNUN og SAUMUR: Hulda Dröfn Atladóttir
LEIKMYNDAHÖFUNDUR: Rebekka A. Ingimundardóttir
TÓN- OG HLJÓÐSMÍÐAR: Steindór Grétar Kristinsson
LAGASMÍÐAR OG KÓRSTJÓRN: Gísli Magna Sigríðarson
LJÓSAHÖNNUN: Juliette Louste
HREYFIHÖNNUN: Juliette Louste
MYNDBANDSHÖNNUN: Stefanía Thors
FRAMLEIÐSLA: Heba Eir Kjeld
GRAFÍSK HÖNNUN: Aðalborg Birta Sigurðardóttir

LEIKARAR:

• Þórey Sigþórsdóttir
• Halldóra Rósa Björnsdóttir
• Ingibjörg Gréta Gísladóttir

Anna Kristín Arngrímsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Ásdís Skúladóttir, Helga E. Jónsdóttir, Jón Hjartarson, Sæmi Rokk Pálsson og Breiðfirðingakórinn.

Verkefnið er styrkt af Menningar- og viðskiptaráðuneytinu og Sviðslistasjóði.
Við þökkum Reykjavíkurborg fyrir samstarfið með Augnablik - Ég á mér rödd sem fram fór í félagsmiðstöðvum borgarinnar 2021