Skip to content

Tix.is

Tjarnarbíó

Um viðburðinn

Hátíðarpassi - 6.400 kr. (Smellið á hlekk til að kaupa)

Júlíu dúettinn – er dansverk innblásið af hinum klassíska ballet Rómeó og Júlía eftir Prokofiev. Hugmyndin spratt af samstarfi okkar við dansverkið Romeo und Juliet sem var frumsýnt 2018 í Gärtnerplatztheater og til stendur að setja upp í Borgarleikhúsinu í haust með Íslenska Dansflokknum.

Við erum ennþá að vinna að sýningunni og viljum gjarnan bjóða þér á opna æfingu til að deila með þér einu og öðru sem hefur orðið til í vinnuferlinu fram að þessu, eins og ballet exorcisma (eða ballett særingar) í bland við dass af jazzballet, öskur-óperu og hjartslætti.

Komdu eins og þú ert með hlýju og mjúk augu.

Júlíu dúettinn verður frumsýndur í Schauspiel Leipzig 22. febrúar 2022 sem hluti af residensíu prógrammi leikhússins.

Júlíu dúettinn eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur
Sviðsmynd eftir Chrisander Brun
Hljóðvinnsla eftir Valdimar Jóhannsson
Tónlist eftir Stephen O’Malley og Sergei Prokofiev
Búningar eftir Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur
Ljósmyndir eftir Margréti Seema Takyar
Framleitt af Schauspiel Leipzig og Shalala
Meðframleiðendur: BIT Teatergarasjen Bergen, Rosendal Teater Trondheim, Zodiac Helsinki og Reykjavík Dance Festival

Vorblót 2021