Fyrsta sýning 14. september 2019
Barnasýning
Sýningin sem hefur farið sigurför um heiminn snýr aftur á svið!
Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er unnin með óvenjulegri aðferð þar sem sagan í verkinu fær að kvikna út úr efniviðnum sem notaður er í sýningunni. Lífið fjallar um sköpunarkraft, vináttu og hringrás lífsins, þar sem unnið er með mold.
Lífið hefur hlotið einróma lof áhorfenda og gagnrýnenda, jafnt á Íslandi sem erlendis.
Verkið hefur m.a. verið sýnt í Kína, Þýskalandi, Hollandi, Noregi og á Möltu og verða örfáar sýningar í Tjarnarbíói í haust.
Lífið var valin besta barnasýningin ársins 2015 á Grímunni – Íslensku sviðslistaverðulaununum, auk þess sem leikhópurinn Tíu fingur var valinn Sproti ársins 2015. Sprotinn er veittur einstaklingi eða hópi sem þykir sýna einstakan frumleika og framúrskarandi nýbreytnií sköpun sinni í sviðslistum.
„Það er allt fallegt við þessa sýningu. Allar stjörnurnar í húsinu!“
G.S.E. - Djöflaeyjan
„Lífið er yndisleg sýning!“
S.B.H. - Morgunblaðið
„Það verður seint fullþakkað að til eru listamenn sem bjóða yngri börnum leikhússupplifun sem er valkostur við hraðann, hávaðann og íburðinn í stóru barnasýningunum.“
D.K. - Hugrás
Höfundar: Leikhópurinn Tíu Fingur
Listrænir stjórnendur: Helga Arnalds og Charlotte Böving
Leikarar: Sólveig Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson
Tónlist: Margrét Kristín Blöndal
Ljósahönnun: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tæknimenn: Arnþór Þórsteinsson og Hafliði Emil Barðason
Styrktaraðilar: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Sviðslistasjóður, Starfslaunasjóður listamanna og Reykjavíkurborg
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |