Loading…
Skilmálar Tix.is og Dalurinn.is
ALMENNIR SKILMÁLAR
- Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað, er þetta rétt dagsetning, rétt svæði, rétt tímasetning o.s.frv. Það kemur fyrir að ekki er hægt að leiðrétta miðakaup eftir á.
- Ekki er heimilt að áframselja miða með fjárhagslegum hagnaði. Ef miði er seldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir annan aðila en aðstandenda viðburðar, þá áskilur Tix Miðasala sér rétt til að ógilda miðann með öllu.
- Ef viðburður fellur niður, þá er eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu eða full endurgreiðsla á miða. Dagsetning og tímasetning viðburða gæti breyst án fyrirvara.
- Allur vopnaburður ógildir miða án endurgreiðslu.
- Ef dag- eða tímasetningu viðburðar er breytt, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýja dag/tímasetningu. Ef ný dag/tímasetning hentar ekki á kaupandi rétt á endurgreiðslu, en Tix Miðasala getur í tilkynningu um breytingu sett ákveðin tímamörk sem viðskiptavinir hafa til að falla frá kaupunum.
- Eftir að þú hefur keypt miða hjá dalurinn.is, í gegnum veraldarvefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá dalurinn.is, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum eða endurgreiðslubeiðni berst þegar minna en 14 dagar eru í viðburð átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.
- Eftir að miði hefur verið sendur í pósti til eigenda þá er póstburðargjald í engum tilfellum endurgreitt.
- Aldurstakmark á viðburði ræðst eftir útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað, sem leyfi hefur til áfengisveitinga. eftir kl. 20.00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins, nema í fylgd með forsjáraðila. Viðburðarhaldari getur þó sett sínar eigin reglur varðandi aldurstakmörk og gilda þær þá fram yfir þær reglur sem settar eru í skilmálum Tix Miðasölu.
- Ekki er tekin ábyrgð á ef að viðburður fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka eins og t.d náttúruhamfara, óveðurs eða ófærðar.
- Miðar á Þjóðhátíð bera 24% VSK en ferjumiðar ekki.
- Aðgöngumiði á hátíðarsvæðið tryggir ekki öruggar ferðir í samgöngum. Miði fæst ekki endurgreiddur falli niður ferðir hjá samgönguaðilum.
- Takmarkaður miðafjöldi. Á suma viðburði er miðafjöldi takmarkaður við miðakaup, ef fleiri miðar eru keyptir á saman nafn, kennitölu, netfang eða kreditkort, þá áskilur Tix Miðasala sér rétt til þess að ógilda alla miða sem keyptir eru umfram þann fjölda sem tiltekinn er.
- Með kaupum á miða hjá Tix Miðasölu, samþykkir þú að fá sendan tölvupóst, svosem upplýsingar um viðburðinn eða þjónustu tengda honum, frá þeim aðila er stóð að viðburðinum. Ef þú af einhverjum ástæðum vilt ekki samþykkja þetta, þá getur þú haft samband við skrifstofu Tix Miðasölu.
- Tix Miðasala meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög, persónuverndarstefna Tix er aðgengileg á forsíðu Tix.
- Allir viðburðir sem í sölu eru hjá Tix Miðasölu eru ábyrgð aðstandenda viðburðar, ekki Tix Miðasölu.
- Tix Miðasala og aðstandendur viðburða bera enga ábyrgð á persónulegum munum miðaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.
- Seljandi miða eða aðstandendur viðburðar taka ekki á sig aukna ábyrgð en leiðir af lögum s.s. vegna meiðsla og annars tjóns sem kaupandi verður fyrir á viðburði.
- Aðgöngumiðar á hátíðir gefa ótakmarkaðan aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar nema annað komi fram á miða eða í miðakaupum, þó jafnframt háð fjöldatakmörkunum hvers viðburðar fyrir sig.
- Veljir þú að nýta þér þann möguleika að fá miðann beint í símann þá samþykkir þú um leið að Tix sendi upplýsingar um miðann þinn til Nova til birtingar í Nova appinu. Nova meðhöndlar upplýsingar í samræmi við skilmála Nova og meðhöndlun persónuupplýsinga.
- Á þessum viðburði verða teknar myndir sem geta verið notaðar í markaðsskyni á grundvelli lögmætra hagsmuna Ölgerðarinnar og ÍBV íþróttafélags (sjá persónuverndarstefnu Ölgerðarinnar).
- Athugið að passa miðana ykkar vel. Týndur miði er tapað fé. Aðstandendur viðburðar taka ekki ábyrgð á óþægindum sem gætu hlotist vegna falsaðra eða afritaðra miða. Ef upp kemst um afritaða eða falsaða miða gæti ábyrgðarmaður viðburðar neitað öllum handhöfum miða inngangi á viðburð og krafist borgunar fyrir alla afritaða eða falsaða miða frá upprunalegum kaupanda.
- Fyrirspurnir varðandi miðakaup skal senda á info@tix.is og láta númer pöntunar fylgja með sé spurt um miðakaup sem þegar hafa verið gerð.
- Tix Miðasala ehf.
Kennitala: 630914-0190
- ÍBV íþróttafélag
- Kennitala:. 680197-2029