Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR!
TÓNLEIKARNIR ERU UM 105 MÍNÚTUR
EKKERT HLÉ

BAFTA-verðlaunahafinn Ólafur Arnalds lýkur viðburðaríku ári með tónleikum í Eldborg en þeir eru hluti af metnaðarfyllsta tónleikaferðalagi hans til þessa.

Þrjú ár eru síðan Ólafur hélt tónleika á Íslandi en undanfarin misseri hefur hann unnið að hinum ýmsu verkefnum, s.s. kvikmynd og plötu undir nafninu Island Songs, tónlist fyrir sjónvarpsþáttaraðirnar Broadchurch og Philip K. Dick’s Electric Dreams auk þess að leika með rafsveitinni Kiasmos. Í lok ágúst er væntanleg ný plata frá Ólafi sem ber nafnið re:member. Nú þegar hafa komið út þrjú lög af re:member og þau hlotið frábærar viðtökum um heim allan.

Tónleikarnir í Hörpu eru hluti af viðamiklu tónleikaferðalagi Ólafs árið 2018. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í Evrópu og Norður Ameríku í vor en uppselt var á þá alla, m.a. í hinu fornfræga tónleikahúsí Royal Albert Hall í London. Næsta haust og vetur teygir tónleikaferðalagið úr sér um allan heim. Með Ólafi á sviði verða strengjakvartett og slagverksleikari en miðpunktur tónleikanna eru tvö sjálfspilandi píanó:

„Ég er að þróa algjörlega nýja sviðssetningu sem byggir á hugbúnaði sem við höfum hannað til að stýra sjálfspilandi píanóum. Það verða því þrjú píanó á sviðinu, ég spila á eitt og hin fylgja mér með hjálp gervigreindar - og því verða engir tveir tónleikar alveg eins.“

Í Eldborg koma Ólafur og hljómsveitin öll, mennsk og ómennsk, til með að spila nýtt efni í bland við eldra, sem sett verður í nýjan og spennandi búning. Engu verður til sparað og búist við að tónleikarnir verði mikil veisla fyrir augu og eyru.

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að sjá Ólaf Arnalds á heimavelli.

Fjögur verðsvæði eru í boði:
Úrvalssæti:       14.990 kr.         (sjá fjólublátt á mynd)
Verðsvæði 1:     12.990 kr.         (sjá rautt á mynd)
Verðsvæði 2:     11.990 kr.         (sjá blátt á mynd)
Verðsvæði 3:     10.990 kr.         (sjá grænt á mynd)
Verðsvæði 4:     8.990 kr.           (sjá gult á mynd)

Sjá mynd af sal hér

Umsjón: Sena Live