DAGSKRÁ KVÖLDSINS:
19:30 - Salur opnar
20:00 - Sýning hefst
21:40 - Hlé
22:00 - Sýning hefst aftur
22:40 - Áætlaður endir*
* Dagskráin getur riðlast og er birt með fyrirvara.
Þegar Tommy Tiernan stígur á svið er það líkt og að fá leiðbeiningar frá fjarlægri stjörnu; maður má
bara ekki taka því of alvarlega. Hann leggur allt sem er pólitískt og persónulegt í sölurnar því eina
markmið kvöldsins er hlátur. Leyfum okkur að hlæja að eigin óförum og kærum okkur kollótt um
lífsins vandamál á Under the Influence með Tommy Tiernan í Silfurbergi, Hörpu, föstudaginn 20.
október.
Láttu leiða þig áfram af þessum réttindalausa uppistandara sem uppfyllir engin skilyrði um eitt né neitt og getur ekki boðið upp á annað en hálfúthugsuðar pælingar. Hann er frábær á sviði, elskar tungumál og er með stóran kjaft. Er honum treystandi? Til að vera kjáni, já. Til að haga sér, nei. Líkt og umferðarstjóri sem stendur frammi fyrir sinfóníuhljómsveit með skeið í annarri hendinni og þokulúður í hinni ... Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis?
„Tommy Tiernan reif í sundur og stal senunni með vandræðalega fyndnum frásögnum sem reyndu á þolrifin.“ – The Irish Times
„Andleg göfgi einkennir Tiernan og lætur hann skara fram úr. Missir kirkjunnar er fengur grínsins.“ – The Standard
„Ótvíræður máttur kómedíunnar“ – The Guardian
Um eitt verðsvæði er að ræða og kostar miðinn 5.990 kr. Aðeins tæplega 500 miðar eru í boði í heildina.
Umsjón: Sena Live
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |