Skip to content

Tix.is

Sinfó

  • 4. nóvember 2025 kl. 20:00

Miðaverð:2.000 kr.

Um viðburðinn

Á þessum tónleikum koma fram þau K.óla, MOTET og Turturi.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur. Upprásin fer nú fram þriðja árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi.

Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.

Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

K.óla

K.óla skapar á sviði litríkan og leikandi heim sem fangar bæði augu og eyru. Síðan 2018 hefur Katrín Helga Ólafsdóttir komið fram undir nafninu K.óla og heillað áhorfendur, bæði ein og með hljómsveit, með rafbassa, gítar og einlægri textagerð.Hún syngur á íslensku og ensku, með einföldum en áhrifaríkum melódíum. K.óla hefur verið tilnefnd til íslenskra tónlistarverðlauna og hlotið þau, auk þess sem hún hefur unnið með listamönnum frá Danmörku, Færeyjum og Þýskalandi.  

MOTET

MOTET er hljóð-- og sjónlistadúett en að baki honum standa þeir Þorsteinn Eyfjörð og Owen Hindley. Í mögnuðum heimi þeirra renna saman lífræn og vélræn hljóð, spenna á milli fegurðar og eyðileggingar, vonar og uppgjafar. Hljóðið og hinn sjónræni heimur renna saman í eitt og hafa áhrif hver á annan. 

Turturi

Turturi (gamalt íslenskt orð fyrir turtildúfu) er íslensk hljómsveit, stofnuð árið 2024. Sveitin flytur frumsamið efni en textar þeirra eru á íslensku. Innblástur fær hljómsveitin úr draumkenndu indí-poppi, blóma-fólktónlist/rokki 7. - 8. áratugarins og afslöppunardjassi. Turtura skipa Eydís Egilsdóttir Kvaran, gítar og söngur, Iðunn Gígja Kristjánsdóttir, bassi og söngur, Bjarki Hall, hljómborð og söngur og Sævar Andri Sigurðarson, trommur og slagverk.