Skip to content

Tix.is

Sinfó

  • 6. september 2025 kl. 18:00

Miðaverð:2.500 - 3.900 kr.

Um viðburðinn

Tónleikarnir fagna útgáfu þriðju einleiksplötu Oda Voltersvik, Nordic Unrest. 

Í völdum verkum eftir Edvard Grieg og Atla Heimi Sveinsson fangar Voltersvik þætti úr norrænni náttúru í sögum og lýsingum sem eiga rætur að rekja til þjóðsagnalýsinga. Efnisskráin inniheldur verk sem endurspegla innri óróa. 

Óður steinsins eftir Atla Heimi Sveinsson byggir á samnefndu 30 erinda kvæði eftir Kristján frá Djúpalæk frá árinu 1977. Fyrir þessa tónleika hefur listakonan Karina Skilbrei skapað málverk innblásin af hverju ljóði. 

Efnisskrá: 
Edvard Grieg (1843-1907) 
Úr lýrískum verkum, norskum þjóðlögum og dönsum.
Ballaða í g-moll, op. 21 (1876)

Atli Heimir Sveinsson (1938-2019)
Úr Óði steinsins (1983)

Útgáfutónleikaferð Nordic Unrest er styrkt af Noregssjóði fyrir sviðslistamenn (FFUK) og Bergen-borg.