Skip to content

Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Geneva Camerata (GECA) hefur vakið heimsathygli fyrir ferska og nýstárlega nálgun sína við klassíska tónlist. Hljómsveitin kemur fram á sviði Eldborgar í Hörpu, 14. júní 2025 og flytur sýninguna REVOLTA þar sem fléttast saman tónlist Dmitri Shostakovitsj og hiphop dans í magnaðri upplifun.

Á undan sýningunni í Eldborg mun David Greilsammer, hljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi GECA fjalla um sköpunarferlið að baki sýningunni REVOLTA, nýjar leiðir til að nálgast og miðla sígildri tónlist og samruna sinfónískrar tónlistar og hiphop dans svo fátt eitt sé nefnt.

Viðburðurinn fer fram í Hörpuhorni, á annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin. Viðburðurinn fer fram á ensku. Aðgengi er gott.

_______________

 

Nánar um David Greilsammer:

David Greilsammer er píanóleikari og hljómsveitarstjóri og hefur verið listrænn stjórnandi Geneva Camerata allt frá stofnun sveitarinnar árið 2013.

David Greilsammer hefur komið fram sem einleikari og stjórnandi með hljómsveitum á borð við Fílharmóníusveit BBC, Sinfóníuhljómsveitina í San Fransisco, Metropolitanhljómsveitina í Tókýó, Fílharmóníusveitina í Hong Kong, Fílharmóníusveit Franska þjóðarútvarpsins og Þjóðarsinfóníuhljómsveitina í Mexíkó og haldið einleikstónleika í tónleikahúsum svo sem í Lincoln Center í New York, Kennedy Center í Washington, Concertgebouw í Amsterdam, Wigmore Hall í Lundúnum, Elbphilharmonie í Hamborg og Théâtre du Châtelet í París. Frá árinu 2022 hefur David Greilsammer verið listrænn stjórnandi Medellín-fílharmóníusveitarinnar í Kólumbíu.

David Greilsammer hefur frá upphafi ferils síns verið vakandi fyrir því að miðla sígildri tónlist sem víðast og opna heim hennar fyrir nýjum áheyrendahópum. Starf hans með Geneva Camerata vitnar um þessa ástríðu; verkefnavalið er nýstárlegt og frumlegt, ólíkum tónlistarstílum og straumum er teflt saman á einum og sömu tónleikunum og frjótt samstarf við listafólk úr fjölbreyttum heimum sviðslista, myndlistar og úr öðrum tónlistargeirum setur tónlistina í nýtt og ögrandi samhengi.

_____________________

Nánar um sýninguna REVOLTA

Kaupa miða á Revolta

 

Júní
Janúar
Febrúar
Mars
Apríl
Maí
Júní
Júlí
Ágúst
September
Október
Nóvember
Desember
2025
1950
1951
1952
1953
1954
1955
1956
1957
1958
1959
1960
1961
1962
1963
1964
1965
1966
1967
1968
1969
1970
1971
1972
1973
1974
1975
1976
1977
1978
1979
1980
1981
1982
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
2019
2020
2021
2022
2023
2024
2025
2026
2027
2028
2029
2030
2031
2032
2033
2034
2035
2036
2037
2038
2039
2040
2041
2042
2043
2044
2045
2046
2047
2048
2049
2050
MánÞriðMiðFimFösLauSun
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
0:00
1:00
2:00
3:00
4:00
5:00
6:00
7:00
8:00
9:00
10:00
11:00
12:00
13:00
14:00
15:00
16:00
17:00
18:00
19:00
20:00
21:00
22:00
23:00