Skip to content

Tix.is

Sinfó

  • 2. nóvember 2025 kl. 16:00

Miðaverð:6.900 - 8.900 kr.

Um viðburðinn

Vespers eftir Rachmaninoff - Kyrkja + Yrkja - Næturvaka fyrir fórnarlömb stríðs.

Sönghóparnir Kyrja og Yrkja sameina krafta sína og flytja hina stórkostlegu Næturvöku (Vespers og Matins) eftir Sergei Rachmanínoff í Norðurljósum, með aðeins tuttugu söngvurum án stjórnanda.

Á allra sálna messu, 2. nóvember, þegar ljósið dvín og vetur tekur við, komum við saman til að minnast látinna í athöfn ljóss og tónlistar. Við minnumst ástvina okkar og tileinkum tónleikana sérstaklega fórnarlömbum stríðsins í Úkraínu og Palestínu.

Miðar eru fáanlegir á tix.is. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Sígilda sunnudaga 2025–2026 og Óperudaga 2025.

Kyrja er karlakór sem stofnaður var árið 2022 með það að markmiði að færa út kvíar kórtónlistar. Yrkja er glænýr kvennakór stofnaður í sama tilgangi árið 2025. Báðir eru þeir undir listrænni stjórn Philips Barkhudarov og Sólveigar Sigurðardóttur. Söngvarar eru:

Sópran
Alda Úlfarsdóttir
Ásta Sigríður Arnardóttir
María Konráðsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir

Alt
Bergþóra Linda Ægisdóttir
Margrét Björk Daðadóttir
Sara Gríms
Sunna Karen Einarsdóttir
Valgerður Helgadóttir

Tenór
Bjarni Guðmundsson
Jón Ingi Stefánsson
Marteinn Snævarr Sigurðsson
Þorkell Helgi Sigfússon
Þorsteinn Freyr Sigurðsson
Þórhallur Auður Helgason

Bassi
Pétur Oddbergur Heimisson
Philip Barkhudarov
Ragnar Pétur Jóhannsson
Stefán Sigurjónsson
Örn Ýmir Arason

Athugið að salnum er skipt upp í þrjú verðsvæði:
Rautt (svalir) kr. 8900
Blátt kr. 7900
Grænt kr. 6900