RAUST flytur klassísk kórverk í bland við nýjar tónsmíðar frá ólíkum heimshornum.
Stjórnandi kórsins er Hrafnhildur Blomsterberg.
Hvar: Hörpuhorn
Hvenær: Sunnudag, 25. maí kl. 16:00 - 16:30
RAUST er sjálfstætt starfandi blandaður kór stofnaður haustið 2022. Kórinn stofnaði hópur kórsöngvara sem flestir hafa margra ára reynslu af kórsöng og hafa tekið þátt í fjölda alþjóðlegra hátíða og keppna víða um Evrópu undanfarna tvo áratugi. Kórinn leggur áherslu á að flytja fjölbreytta og metnaðarfulla tónlist sem spannar allt frá klassík til nútíma tónsmíða frá öllum heimshornum. Stjórnandi kórsins er Hrafnhildur Blomsterberg.
Tónleikarnir eru liður í vortónleikaröð Félags íslenskra kórstjóra í Hörpuhorni. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.