Í tilefni af 70 ára afmæli Kópavogs bjóða bæjarfélagið og heiðurslistamaður Kópavogs, Össur Geirsson, til stórtónleika í Norðurljósasal Hörpu sunnudaginn 16. mars kl. 17. Þar mun Össur stýra Skólahljómsveit Kópavogs sem skipuð er 60 hljóðfæraleikurum á aldrinum 13 til 20 ára. Verkin sem flutt verða eru öll útsett af Össuri.
Á tónleikunum fer Össur yfir 30 ára feril sinn sem útsetjari og leikur sveitin valin verk frá ýmsum tímabilum. Össur hefur útsett, samið og flutt yfir 500 tónverk á ferli sínum og fá áheyrendur að upplifa þversnið af glæstum ferli hans, en með sanni má segja að Össur sé einn helsti máttarstólpi og áhrifavaldur í tónlistarlífi Kópavogsbúa.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |