Skip to content

Tix.is

Sinfó

  • 23. apríl 2025 kl. 20:00

Miðaverð:4.500 kr.

Um viðburðinn

Múlinn jazzklúbbur

Flytjendur
Óskar Guðjónsson, saxófónn
Magnús Jóhann Ragnarsson, píanó

Um tónleikana
Píanóleikarinn Magnús Jóhann og saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson hafa ýmsa fjöruna sopið, saman og sinn í hvoru lagi. Óskar er einn fremsti djasstónlistarmaður landsins og Magnús einn virkasti músíkant í Reykjavík. Leiðir þeirra lágu fyrst saman í hljómsveitinni Moses Hightower og með söngkonunni Bríeti en haustið 2024 gáfu þeir út hljómplötuna Fermented Friendship. Platan inniheldur nýjar tónsmíðar þeirra beggja þar sem dúnmjúkur hljómur Óskars nýtur sín vel í samtali við fagran píanóleik Magnúsar. Þeir hljóðrituðu plötuna í Norðurljósasal Hörpu í maí 2023 eftir vetrarlangt undirbúningsferli og færa sig nú upp um nokkrar hæðir í sama húsi til þess að spila á Múlanum.