Skip to content

Tix.is

Sinfó

  • 31. jan. - kl. 12:30

Miðaverð:5.900 - 25.900 kr.

Um viðburðinn

Þema Janúarráðstefnu Festu 2025 er virðiskeðjan - straumar sjálfbærni.  

Að þessu sinni verða með okkur innlent og erlent áhrifafólk sem mun segja frá hinum ýmsu hliðum sjálfbærni í virðiskeðjunni; reglugerðum, mannréttindum, ungu fólki, gervigreind, losun, hringrás, fjármögnun og stöðuleika á alþjóðavettvangi.  

Fullmótuð dagskrá verður aðgengileg fyrir áramót 2024.  

Atvinnulíf, einstaklingar, félagasamtök, opinberar stofnanir eða sjálfbærniáhugafólk ættu að geta fengið innblástur, hugmyndir og heyrt um lausnir á þessari stærstu árlegu sjálfbærniráðstefnu á Íslandi.  
 
Verið öll hjartanlega velkomin að vera með okkur í Hörpu 31. janúar kl. 12:30 á árshátíð sjálfbærnisamfélagsins á Íslandi. 

Almennt miðaverð er 25.900 kr.
Aðildafélagar í Festu fá miðann á 18.900 kr.  
Miðaverð fyrir nemendur er 5.900 kr. 

Í boði verður að fá túlkun yfir á ensku á ráðstefnunni. Ef þú óskar eftir túlkun, sendu okkur póst á festa@sjalfbaer.is