Spilverk
þjóðanna - Heiðurstónleikar
Þau Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla, Valgeir Guðjónsson og Diddú gerðu heiminn
betri með frábærum lögum og textum sem komu út hljómplötum Spilverks
þjóðanna. Nú ætlar margt af fremsta tónlistarfólki þjóðarinnar að heiðra
hljómsveitina á tónleikum þar sem hvergi verður slakað á í gæðum.
Valdimar Guðmundsson, Hildur Vala og Skafararnir héldu tvenna eftirminnilega
tónleika í Salnum fyrir 3 árum og nú skal leikurinn endurtekinn með fulltingi
Ólafs Egilssonar og sjálfrar Diddúar!
Dómar tónleikagesta hafa verið meðal annars á þessa leið:
“Þvílík snilld. Mæli með þessu fyrir alla unnendur Spilverks þjóðanna”.
(Jóhann Vilhjálmsson)
“Það var eins og að ferðast á dúnmjúku skýi aftur í tímann að hlusta á Skafarana
ásamt þeim Hildi Völu og Valdimari flytja lög Spilverksins”.
(Tinna Gunnlaugsdóttir)
Flytjendur:
Diddú, söngur
Valdimar Guðmundsson, söngur, básúna
Hildur Vala, söngur
Ólafur Egilsson, söngur
Jón Ólafsson, söngur og hljómborð
Andri Ólafsson, söngur og bassi
Sigurður Flosason, saxófónn, klarinett og slagverk
Matthías Stefánsson, gítar og fiðla
Stefán Már Magnússon, gítar og munnharpa
Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir, trommur og slagverk
Umsjón: Dægurflugan ehf.