Yo-Yo Ma selló
Kathryn Stott
píanó
Gabriel Fauré
Berceuse
Antonín Dvorák
Songs My Mother
Taught Me
Sérgio Assad
Menino
Nadia Boulanger
Cantique
Gabriel Fauré
Papillon
Dmitríj Shostakovitsj
Sónata fyrir selló og
píanó í d-moll
Arvo Pärt
Spiegel im Spiegel
César Franck
Sónata í A-dúr fyrir fiðlu
og píanó
Yo-Yo Ma er einn þekktasti sellóleikari samtímans. Hann hefur á löngum og glæsilegum ferli hrifið áheyrendur um allan heim með heillandi túlkun sinni, óaðfinnanlegri tækni og miklum persónutöfrum, auk hinnar brennandi ástríðu sem hann hefur fyrir tónlistinni og mætti hennar til að koma góðu til leiðar í heiminum. Eftir tónleika Ma með Sinfóníuhljómsveit Íslands gefst áheyrendum hér einstakt tækifæri til að kynnast hinni hliðinni á þessum einstaka tónlistarmanni þar sem hann leikur litríka og hrífandi efnisskrá fyrir selló og píanó með samstarfskonu sinni til margra ára, Kathryn Stott. Stott er þekkt um allan heim sem einn hugmyndaríkasti og fjölhæfasti píanóleikari Breta, og hefur Washington Post haft á orði að hún sé „jafnoki Yo-Yo Ma og leiki á píanóið með eftirtektarverðum sérkennum.” Yo-Yo Ma og Kathryn Stott hafa átt farsælt samstarf um árabil, leikið saman á fjölda tónleika og sent frá sér verðlaunaðar hljóðritanir. Þessir tónleikar eru hluti af yfirstandandi tónleikaferðalagi þeirra þar sem þau leika í mörgum af helstu tónleikasölum heims, til dæmis í Barbican Centre, Konserthuset í Stokkhólmi, Fílharmóníunni í Berlín, Herkulessal í München og Fílharmóníunni í París. Þau hafa einnig haldið tónleika í þekktustu tónleikahúsum heims eins og Walt Disney Hall í Los Angeles og Carnegie Hall í New York.
Verkin á efnisskrá þessa óviðjafnanlega dúós spanna allt frá
nítjándu öldinni til þeirrar tuttugustu og fyrstu. Þar er meðal
annars að finna hina tilfinningaþrungnu sellósónötu Dmitríj
Shostakovitsj og hina hrífandi fögru fiðlusónötu Césars
Franck leikna á selló. Þá hljóma nokkur yndisfögur og íhugul
smáverk í útsetningum fyrir selló og píanó