Sinfóníuhjómsveit Íslands
Nathanaël Iselin
hljómsveitarstjóri
Ungsveit SÍ
Aaron Copland
Fanfare for the Common
Man
Antonín
Dvorák
Sinfónía nr. 9, Sinfónía
úr nýja heiminum
Tónleikar Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru
árlegt tilhlökkunarefni, en þar leikur glæsilegur hópur ungs
tónlistarfólks sem tekið hefur þátt í hljómsveitarnámskeiði
Sinfóníunnar eitt af stórvirkjum tónlistarsögunnar. Í ár er það
hin kröftuga og grípandi níunda sinfónía Antoníns Dvorák,
Sinfónía úr nýja heiminum, ásamt Fanfare eftir Aaron Copland sem hljóma undir stjórn Nathanaël Iselin.
Árið 1891 stóð
tónskáldið Antonín Dvorák á fimmtugu og átti þegar glæsilegan tónsmíðaferil að baki. Hann hafði nýlega tekið við
prófessorsstöðu í Prag og kunni best við sig í heimahögum
sínum í sveitum Bæheims. Það var þá sem honum var gert
tilboð sem hann gat ekki hafnað: Að taka við rektorsstöðu
nýs tónlistarháskóla í New York. Hann lét á endanum til
leiðast og sigldi vestur um haf. Þar opnaðist svo sannarlega
nýr heimur og Dvorák varð uppnuminn af hrifningu á tónlist
heimamanna, ekki síst svartra Bandaríkjamanna, sem hann
lagði sig eftir að kynnast. Þessara áhrifa gætir greinilega
í Sinfóníunni úr nýja heiminum sem frumflutt var í hinum
nýbyggða tónleikasal Carnegie Hall árið 1893. Verkið er uppfullt af andagift og geymir ótal eftirminnilegar laglínur, jafnt
upplífgandi sem angurværar, auk þess sem það nýtir krafta hljómsveitarinnar til hins ítrasta