EFNISSKRÁ
Sergej Prokofíev Klassíska sinfónían
Ferruccio Busoni Píanókonsert
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Kornilios Michailidis
EINLEIKARI
Benjamin Grosvenor
KÓR
Karlakórinn Fóstbræður
KÓRSTJÓRI
Árni Harðarson
Árið 2024 eru hundrað ár liðin frá andláti eins mesta píanóleikara sögunnar,
hins ítalska Ferruccio Busoni, en auk þess að vera óviðjafnanlegur einleikari
var Busoni frábært tónskáld og hljómsveitarstjóri. Í dag þekkja hann margir
einna helst af ægifögrum umritunum á hljómborðsverkum Johanns Sebastians Bach.
En tónsmíðar hans sjálfs búa ekki síður yfir mikilli snilld og þótti mörgum
hann ná að sameina í tónlist sinni áhrif andstæðra póla 19. aldarinnar – frá
Brahms annars vegar og frá Liszt og Wagner hins vegar. Píanókonsert hans er
eitt stórbrotnasta og umfangsmesta verk sinnar tegundar í sögunni og ögrar
lögmálum formsins á ýmsan hátt. Það er því einstaklega ánægjulegt að einn
fremsti píanóleikari samtímans, hinn breski Benjamin Grosvenor, leiki það í
Eldborg með Sinfóníuhljómsveit Íslands og karlakórnum Fóstbræðrum, en þátttaka
karlakórsins er einmitt meðal þess sem veitir konsertinum sérstöðu. Á undan
þessum stærsta píanókonserti sögunnar hljómar hið samþjappaða meistaraverk
Prokofíevs, Klassíska sinfónían, sem endurómar fagurfræði 18. aldar og gefur
hvergi eftir í hugmyndaauðgi og snilldarlegu handbragði þrátt fyrir að vera
aðeins um stundarfjórðungur að lengd.