Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

EFNISSKRÁ
Anna Þorvaldsdóttir METACOSMOS
Anna Þorvaldsdóttir Heyr þú oss himnum á
Anna Þorvaldsdóttir Ad Genua
Anna Þorvaldsdóttir ARCHORA

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen

EINSÖNGVARI
Bryndís Guðjónsdóttir

KÓR
Kór Hallgrímskirkju

KÓRSTJÓRI
Steinar Logi Helgason

Þessir föstudagstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hallgrímskirkju eru helgaðir verkum Önnu Þorvaldsdóttur og haldnir í samstarfi við Hallgrímskirkju. Þar hljómar í upphafi hljómsveitarverkið METACOSMOS, þar sem fegurð og óreiða takast á. Þá tekur við innilegur sálmur Önnu fyrir kór, Heyr þú oss himnum á, saminn árið 2005 við sálm séra Ólafs frá Söndum sem uppi var á 17. öld. Við tekur önnur hrífandi tónsetning Önnu á ljóði, en Ad Genua er fyrir sópran, kór og strengjasveit og er samið við texta Guðrúnar Evu Mínervudóttur. Að lokum verður hljómsveitarverk Önnu, ARCHORA, flutt undir stjórn Evu Ollikainen en Eva hélt einnig um tónsprotann við heimsfrumflutning verksins á Proms, tónlistarhátíð breska ríkisútvarpsins BBC, í Royal Albert Hall sumarið 2022. Verkið var flutt í orgellausri útgáfu í Eldborg haustið 2022 en að þessu sinni fær hið glæsilega Klais­orgel Hallgrímskirkju að njóta sín.