Skip to content

Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

EFNISSKRÁ
Claude Debussy Forleikur að síðdegi skógarpúkans
Camille Saint-Saëns Odelette
Toru Takemitsu I Hear the Water Dreaming
Cecile Chaminade Concertino
Johannes Brahms Sinfónía nr. 1

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen

EINLEIKARI
Emmanuel Pahud

Emmanuel Pahud er einn fremsti flautuleikari samtímans, heimsþekktur fyrir sinn „gullna og flæðandi tón“ (Guardian). Hann er afar eftirsóttur sem einleikari og hefur hljóðritað og gefið út yfir 40 hljómplötur undir merkjum Warner-útgáfurisans. Þá hefur Pahud gegnt stöðu leiðandi flautuleikara hinnar virtu Fílharmóníusveitar Berlínar frá árinu 1993, þegar hann var aðeins 22 ára. Það er því sérstakt fagnaðarefni að fá að hlýða á Pahud leika þrjá ólíka flautukonserta á sömu tónleikum, en verkin eru stutt og grípandi hvert á sinn hátt: Odelette eftir franska tónskáldið Camille Saint­Saëns byggir á töfrandi tyrkneskum áhrifum, I hear the water dreaming eftir japanska meistarann Toru Takemitsu er draumkennt og heimspekilegt í senn og Concertino eftir hina frönsku Cecile Chaminade er rómantískt glæsiverk af bestu gerð. Tónleikarnir hefjast á Forleik að síðdegi skógarpúkans eftir Claude Debussy. Þar er þverflautan ekki síður í forgrunni enda er hún samkvæmt goðsögninni hljóðfæri hins dulúðuga skógarpúka. Seinni hluti tónleikanna er helgaður fyrstu sinfóníu Brahms, umfaðmandi stórvirki sem tók tónskáldið rúm 20 ár að fullklára.