Skip to content

Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

EFNISSKRÁ
Daníel Bjarnason I Want To Be Alive I: Echo / Narcissus
Anders Hillborg Sellókonsert Sofia Gubaidulina
Igor Stravinskíj Eldfuglinn (svíta)

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen

EINLEIKARI
Amalie Stalheim

Á upphafstónleikum starfsársins stjórnar Eva Ollikainen kraftmikilli balletttónlist Igors Stravinskíj við ævintýrið um Eldfuglinn, grípandi meistaraverki sem gerði hinn 27 ára gamla Stravinskíj heimsfrægan á einni nóttu þegar það var frumflutt í París árið 1910. Verkið byggir á rússneskri þjóðsögu um prins sem frelsar prinsessu úr klóm skelfilegs skrímslis með aðstoð þokkafullrar kynjaveru, eldfuglsins, sem verkið dregur nafn sitt af. Á undan ævintýri Stravinskíjs hljómar annað lítið ævintýri, Märchenpoem eða Ævintýraljóð eftir Sofiu Gubaidulinu, töfrandi lítil tónhugleiðing um listina og fegurðarþrána.

Einleikari tónleikanna er hin unga, norska sellóstjarna Amalie Stalheim sem hlotið hefur fjölda verðlauna fyrir leik sinn og er óðum að leggja tónlistarheiminn að fótum sér. Hún stígur á svið með kynngimagnað samtímaverk í farteskinu, sellókonsert sænska tónskáldsins Anders Hillborg sem sameinar fíngerða ljóðrænu og djúpa, syngjandi ástríðu.

Tónleikarnir hefjast á Íslandsfrumflutningi á glænýju verki eftir Daníel Bjarnason, fyrsta verkinu í hljómsveitarþríleik Daníels sem pantaður var af Sinfóníuhljómsveitinni í Toronto. Þríleikurinn er innblásinn af gervigreind og hverfist um spurningar um eðli meðvitundarinnar og lífsins. Hann ber titilinn I Want To Be Alive. Fyrsta verkið í þríleiknum ber titil sem vísar í gríska goðafræði, Echo / Narcissus.