Skip to content

Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Viðburðurinn Klassíkin okkar er löngu orðin að föstum punkti í tónlistarlífi landsmanna en þá sýnir Sjónvarpið beint frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem þjóðin fær að hlutast til um efnisskrána og öllu er tjaldað til. Að þessu sinni verður vinsæl tónlist úr kvikmyndum í aðalhlutverki – allt frá Wolfgang Amadeusi Mozart og Ludwig van Beethoven til John Williams, Jóhanns Jóhannssonar og Hildar Guðnadóttur, auk ógleymanlegra laga úr íslenskum kvikmyndum.

Það er því næsta víst að allir finna eitthvað við sitt hæfi – spennu, drama, húmor og djúpar tilfinningar í ómótstæðilegum laglínum sem lifnað hafa á hvíta tjaldinu. Þetta er í áttunda skipti sem Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV efna til þessa sívinsæla samstarfsverkefnis og verður fjölbreytnin í fyrirrúmi sem endranær.

*Vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna getur Daníel Bjarnason ekki stjórnað Klassíkinni okkar eins og fyrirhugað var. Í hans stað mun Sarah Hicks stjórna tónleikunum en hún kemur við á Íslandi á leið sinni til Lundúna þar sem hún stjórnar BBC Concert Orchestra á tónleikum Rufusar Wainwright á PROMS-tónlistarhátíð BBC.

Prógramm:

· Richard Strauss: Also Sprach Zarathustra úr 2001 Space Odyssey

· Lalo Schifrin: Aðalstefið úr Mission Impossible

· John Williams: Stef uglunnar Hedwig úr Harry Potter

· John Williams: Aðalstefið úr Star Wars

· Sigfús Halldórsson: Vegir liggja til allra átta úr 79 af stöðinni

· Pjotr Tsjajkovskíj : Svanavatnið (2. þáttur, sena 10) úr Billy Elliot og Black Swan

· Bernard Herrmann: Strengjasvíta (brot) úr Psycho

· Wolfgang Amadeus Mozart: Brúðkaup Fígarós: „Duettino“ Sull’aria úr The  Shawshank Redemption

· Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 7, Allegretto úr The King's Speech

· Magnús Eiríksson: Draumaprinsinn úr Okkar á milli í hita og þunga dagsins

· Sigmund Romberg: Hraustir menn úr Karlakórnum Heklu 

· Richard Wagner: Valkyrjan, 3. þáttur: Valkyrjureiðin úr Apocalypse Now, The Birth of a Nation, Valkyrie, The Running Man o.fl.

· Hildur Guðnadóttir: Bathroom Dance úr Joker

· Jóhann Jóhannsson: Domestic Pressures og Cambridge, 1963 úr Theory of Everything

· John Williams: Flugstefið úr E.T.

· Dmitríj Shostakovitsj: Vals nr. 2 úr Jazzsvítu nr. 2 úr Eyes Wide Shut

· Ennio Morricone: Ástarstefið úr Cinema Paradiso

· Ennio Morricone: Aðalstefið úr The Good, the Bad and the Ugly

· Valgeir Guðjónsson: Slá í gegn úr Með allt á hreinu

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Sarah Hicks

FLYTJENDUR
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Herdís Anna Jónasdóttir
Jóna G. Kolbrúnardóttir
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Gissur Páll Gissurarson
Ragnhildur Gísladóttir
Sigrún Eðvaldsdóttir
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú

KÓR
Karlakórinn Fóstbræður Árni Harðarson, kórstjóri