Skip to content

Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Ljóð fyrir loftslagið er viðburður sem fer fram í Norðurljósum Hörpu laugardaginn 6. nóvember kl 14. Tónleikarnir eru á vegum Óperudaga og eru afrakstur samvinnu ungra ljóðskálda og tónskálda. Óperudagar efndu til ljóðasamkeppni fyrir grunnskólanema, þar sem börnum var boðið að senda inn ljóð um náttúruna, loftslagið, framtíðarsýn sína og drauma. Hugmyndin á bak við keppnina var að fá innsýn inn í hugarheim barna og viðhorf þeirra til þessara málefna, ásamt því að efla þátttöku barna í menningarlífinu. Nokkur ljóð voru valin úr og í kjölfarið fengu ung norræn tónskáld það verkefni að semja við þau tónverk. Afraksturinn verður fluttur í Norðurljósum kl 14 og samhliða opnar ný heimasíða sem heldur utan um verkefnið.

Ókeypis aðgangur er fyrir börn undir 18 ára aldri.

Aðstandendur verkefnisins:
Andreas Gundersen, tónskáld
Anna Pärt, tónskáld
Ásbjörg Jónsdóttir tónskáld
Birta Reynisdóttir, mezzó-sópran
Björg Brjánsdóttir flautufæraleikari
Birgit Djupedal tónskáld
Frank Aarnink slagverksleikari

Friðþjófur Þorsteinsson, ljósa- og tæknimaður
Gradualekór Langholtskirkju
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðluleikari
Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla
Guja Sandholt listrænn stjórnandi og söngkona
Helgi Rafn Ingvarsson tónskáld

Hjalti Þór Davíðsson, píanisti
Hrafnhildur Eva Guðmundsdóttir, sópran
Ingibjörg Fríða Helgadóttir sópran

Jón Ingi Stefánsson, vefstjóri
Kristín Sveinsdóttir mezzó-sópran
Lilja Dögg Gunnarsdóttir, mezzó-sópran
Lalli töframaður kynnir
Malin Sallstedt, tónskáld
María Konráðsdóttir, sópran

Margrét Arnardóttir, harmonikka

Ólafur Freyr Birkisson bass-baritón

Pétur Oddbergur Heimisson, verkefnastjóri
Sofie Meyer, tónskáld
Þorkell H. Sigfússon, tenór
Örn Ýmir Arason, bassi

Fjölmörg íslensk og norræn barnaljóðskáld og myndasmiðir