ALMENN SALA HEFST 28. ÁGÚST KL. 10
FORSALA FYRIR PÓSTLISTA SENU LIVE OG JÓLAGESTA HEFST 27. ÁGÚST KL. 10
SKRÁNING Í HANA HÉR
Nýr kafli hefst hjá Jólagestum. Í fyrra kvöddum við “Jólagesti Björgvins” en nú höldum við áfram undir nafninu “Jólagestir”. Upphafsmaðurinn Björgvin er áfram með okkur, en í nýju hlutverki, sem heiðursgestur.
Landslið íslenskrar tónlistar sameinast með alþjóðlegum stjörnum í mögnuðustu tónlistarveislu ársins 21. desember í Höllinni.
SÖNGVARAR ÁRSINS
– Sissel
– Eivör
– Högni
– Svala
– Gissur Páll
SÉRSTAKIR GESTIR
Remember Monday komu, sáu og sigruðu í Eurovision með mögnuðum samhljómi og kraftmikilli sviðsframkomu. Þrjár stórkostlegar raddir frá Bretlandi sem blómstra saman – nú koma þær til Íslands í fyrsta sinn með sína einstöku útgáfu af jólagleði.
Esther Abrami hefur slegið í gegn sem ein ferskasta og áhugaverðasta rödd klassískrar tónlistar í dag. Með milljónir áhorfa á samfélagsmiðlum og tónlist sem sameinar fagurfræði og tilfinningar dregur hún nýja kynslóð að fiðlutónlist. Á Jólagestum 2025 kemur hún fram í fyrsta sinn á Íslandi – með bæði töfra og tækni í farteskinu.
KYNNIR KVÖLDSINS
Jóhannes Haukur Jóhannesson tekur sér frí frá Hollywood til að geta slegið inn jólin með okkur.
HEIÐURSGESTUR
Björgvin Halldórsson – hinn eini sanni, heiðrar okkur með nærveru sinni.
Með þeim á sviðinu verða stórsveit, strengjasveit, gospelkór, barnakór og karlakór – saman ætlar þessi ótrúlegi hópur listamanna að skapa tónaflóð er hreyfir við hjörtum og kemur gestum í hið eina sanna jólaskap í lok aðventu. Þú vilt ekki missa af þessu.
FIMM VERÐSVÆÐI ERU Í BOÐI OG TVENNSKONAR VIP PAKKAR
- A+ sæti: 19.990 (Fjólublátt á mynd)
- A sæti: 17.990 (Bleikt á mynd)
- B+ sæti: 16.990 (Sægrænt á mynd)
- B sæti: 15.990 (Grænt á mynd)
- C sæti: 9.990 (Blátt á mynd)
- VIP Gull:* 29.990 (Gult á mynd)
- VIP Silfur:** 24.990 (Grátt á mynd)
* VIP Gull inniheldur:
– Sæti á besta stað (fyrstu 8 raðir fyrir miðju)
– Sérinngangur í Höllinni
– Drykkur að eigin vali á barnum (léttvín, bjór eða óáfengt)
** VIP Silfur inniheldur
– Sæti á besta stað (næstu 11 raðir fyrir miðju)
– Sérinngangur í Höllinni
– Drykkur að eigin vali á barnum (léttvín, bjór eða óáfengt)
ATH:
- Hjólastólastæði eru að auki fáanleg í kaupferlinu og eru þau alltaf seld 2 saman þar sem annar miðinn gildir fyrir aðstoðarfólk. Verðið er 4.995 kr. pr. miða.
- Í B+ sætum er um hliðarsýn á svið að ræða
Sjá mynd af sal hér
Sjáumst í Höllinni!
Umsjón: Sena Live