Tix.is

Sena

Um viðburðinn

Jóhanna Guðrún heldur Celine Dion heiðurstónleika, föstudaginn 19. maí í Háskólabíói.

Celine Dion er einn þekktasta söngkona okkar tíma og er bæði söluhæsti kanadíski tónlistarmaður heims og söluhæsti frönskumælandi tónlistarmaður heims. Tónlist hennar spannar margar tónlistarstefnur, frá poppi til rokks, frá R&B til gospels og alla leiðina að klassískri tónlist.

Eftir að hafa náð heimsathygli á níunda áratugnum varð hún fljótt að einni goðsagnakenndustu söngkonu heims, með plötuum á borð við Falling into You (1996), Let's Talk About Love (1997) og These Are Special Times (1998). Celine endurskapar sig sífellt sem söngkona og hefur haldið áfram að gefa út lög sem hafa gripið hugu og hjörtu fólks um allan heim. Lög eins og "The Power of Love", "Think Twice", "Because You Loved Me", "It's All Coming Back to Me Now", "My Heart Will Go On", "I'm Your Angel" and "I'm Alive" sem hafa staðist tímans tönn og fara aldrei úr tísku.

Celine hefur verið nefnd ein besta rödd veraldar, unnið fjölda verðlauna og er dýrkuð og dáð í öllum heimshlutum.

Jóhanna Guðrún er ein besta söngkona Íslands og mikill aðdáandi Celine Dion. Hún mun taka sín uppáhalds Celine Dion lög í Háskólabíói og verða henni til taks sérstakir gestir, bakraddir og landslið hljóðfæraleikara.

GESTIR:
Dagur Sigurðsson
Elísabet Ormslev

BANDIÐ:
Þórir Úlfarsson - Hljómsveitarstjórn, hljómborð
Benedikt Brynleifsson - Trommur
Ingvar Alfreðsson - Hljómborð
Diddi Guðnason - Slagverk
Pétur Valgarð Pétursson - Gítar
Valdimar Olgeirsson - Bassi

BAKRADDIR:
Ágústa Ósk Óskarsdóttir
Íris Lind Verudóttir

Umsjón: Sena Live