Tix.is

Sena

Um viðburðinn

ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR KOMNAR Í SÖLU!
SÍÐASTI SÉNS TIL AÐ TRYGGJA SÉR MIÐA
TAKK FYRIR FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR

LADDI OG EYÞÓR INGI hafa slegið rækilega í gegn og hefur fleiri sýningum verið bætt við, og svo fleiri, og svo fleiri! Landsmenn fá ekki nóg af þessari frábæru sýningu, sem er einhvers staðar mitt á milli þess að vera leiksýning og uppistand, með skemmtilegasta dúói landsins.

Strákarnir fara um víðan völl og góðvinir á borð við Elsu Lund, Mófreð gamla, Eirík Fjalar, Saxa og Magnús Bóndakíkja í heimsókn.

Áhorfendur skemmta sér stórkostlega á hverri einustu sýningu en nú er komið að kveðjustund - tryggið ykkur síðustu miðana áður en það verður of seint!

Hljómborð: Karl Olgeirsson
Ljósahönnun: Kristinn Sigurðsson
Hljóðhönnun og tæknikeyrsla: Friðrik Helgason
Framleiðslustjóri: Hrannar Hafsteinsson
Handrit: Laddi
Leikstjóri: Björk Jakobsdóttir

Umsjón: Sena Live