Ari Ólafsson stundar söngnám (Tenor) við The Royal Academy of Music í
London og heldur sína fyrstu eiginlegu klassísku tónleika á Íslandi. Það er því
mikil tilhlökkun hjá Ara að koma til landsins og syngja fyrir ykkur. Látið ekki
þessa tónleika fram hjá ykkur fara því Ari er talinn af mörgum vera einn
efnilegasti ungtenór landsins.Tónleikarnir vera haldnir í Salnum í Kópavogi, sunnudaginn 6. september kl. 17:00. Sérlega verður vandað við lagaval og alla umgjörð á
tónleikunum. Undirleikari á flygil verður Pétur Ernir Svavarsson.