Skip to content

Tix.is

Salurinn

  • 26. mars 2026 kl. 20:30

Miðaverð:7.500 kr.

Um viðburðinn

Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.

Þau eru sérdeilis músíkalskt par, þessi tvö. Saga er löngu búin að gera sig heldur betur gildandi í framlínu íslenskra uppistandara og kómíkera og fádæma vinsæl fyrir vikið. Snorri Helgason vakti fyrst athygli með hljómsveit sinni, Sprengjuhöllinni, og hefur verið í sambandi alveg síðan. Hann hefur verið iðinn við kolann eftir að hljómsveitarmeðlimir fóru sitt í hvora áttina og gefur reglulega út lög eða plötur og gæðin skína í gegn. Nú verða þau leidd saman á svið og þetta ætti að geta orðið fyndið,áhugavert og skemmtilegt kvöld – allt í senn.